Hahaha....ég var að láta af hendi stóru hilluna mína inni á baði fyrir allt snyrtidótið hans Egils sem kemst ekki lengur fyrir á þeirri litlu. Við gerðum nefnilega samning þegar við fluttum upp í svítuna okkar að ég fengi stóru hilluna inni á baði af því að Egill fékk stofuna. Ég átti reyndar ekki að láta þetta fara lengra...úps.
Annars er það af mér að frétta að ég er að fara á tónleika á morgun, jibbýýýý!
Þessi vika er búin að vera sú asnalegasta lengi lengi.
Ég fór á grímuball í gær sem gamall karl. Það var mjög skemmtileg upplifun, ég fékk smá innsýn í það hvernig er að vera gamalmenni. Það er bara ágætt.
Mamma var að koma heim frá Hollandi áðan. Það var gleði. Ég myndi ekki vilja að foreldrar mínir færu oftar til útlanda en þau gera af því ég er svo mikið ósjálfbjarga grey.
Lag dagsins: Sort Sol - Let Your Fingers Do the Walking