Ég er komin heim til mín og klukkan er bara 10 mínútur yfir 5! Það er voða skrýtið. Síðustu þrír dagar eru nefnilega búnir að vera sem einn því ég er búin að vera að gera það sama alla dagana. Mæti í skólann, fer að mála...mála og mála allan daginn og stækka kannski nokkrar ljósmyndir...fæ mér pizzu eða subway og held áfram að stækka eða mála. Svo kem ég heim kl. tíu/hálf ellefu þegar Sigurjón húsvörður kemur og rekur okkur burt. Svo vakna ég daginn eftir og fer í skólann...í gær krydduðum við samt aðeins lífið með einu bjór. Ekki það að kryddun sé nauðsynleg því þetta er svo ótrúlega gaman.
Í kvöld þarf ég reyndar að halda áfram að mála en bara heima hjá mér!
Ég bíð spennt eftir morgundeginum. Hann er nefnilega svolítið öðruvísi. Þá fer ég í skólann og aðeins í tölvuna að klára mína "mögnuðu" teiknimynd og að skanna inn negatífur. Síðan þurfum við aðeins að laga til því stofan lítur ekki sérlega vel út eftir þriggja vikna stanslausa vinnu með olíulitum og terpentínu. En svo...en svo...förum við í vísindaferð í Sjóvá :D Eftir það ætlum við að fá okkur að snæða einhversstaðar áður en við förum á útgáfutónleika með Ampop á Nasa. Ég er svo spennt!
Jæja, þarna fenguð þið smá innsýn inn í líf mitt núna.