Mér finnst nýji auðkennislykillinn sem glitnir hefur tekið í notkun til að auka öryggi í netbönkum stórkostleg mismunum við fólk sem er andlega vanhæft að því leyti að það týnir öllum hlutum, sérstaklega þeim sem eru, tjahh...minni en meðal plóma að stærð. Nei hvaða hvaða...þú festir þetta bara í lyklakippuna, hef ég heyrt. En ég á ekki lyklakippu. Afhverju? Ég glataði henni um leið og ég týndi lyklinum mínum. Afhverju færðu þér ekki nýjan? Ég gerði það, og týndi honum. Hvernig kemst þá inn til þín? Það er alltaf einhver heima og ef ekki...ja, það er eiginlega leyndarmál.
Fyrir alla aðra er þetta afskaplega sniðugt.
Lag:
Cry Baby - Janis Joplin