Jamms ég er að fara á morgun. Ég verð alveg í tvær vikur svo ekki örvænta þó að þið heyrið ekkert frá mér. Signý fór í dag, hún er líklegast í flugvélinni núna og það mun ég líka vera á þessum tíma á morgun..........jeijjjjjj
Verslunarmannahelgin er næstu helgi. Það þýðir aðeins eitt: Sumarið er að verða búið. Ég vona að það verði ógeðslega vont veður um verslunarmannahelgina.
Því að ég verð hvort sem er í Danmörku, hahahahaha!
Ég var að horfa á frétt um Árna Johnsen áðan og hvort hann fengi að stjórna brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Þó að hann sé í fangelsi. Og svo var talað við fullt af Vestmannaeyingum sem voru allir á einu máli um það að auðvitað ætti hann að fá leyfi til þess. Það væri sko engin Þjóðhátíð án Árna!
Æ hann er svolítið aumkunarverður hann Árni.