Lög til að hlusta á þegar verið er að skrifa óendanlega langa ritgerð sem tekur heilu og hálfu dagana og ætlar að ganga af manni dauðum eða vitstola:
Johann Pachelbel - Canon í D Emilie Simon - To the Dancers on the Ice Sigur Rós - Sæglópur
Á morgun byrjar jóladagatalið! Ég missi reyndar af því þar sem ég verð klædd í doppótta samfestinginn minn einhversstaðar á víðavangi að spila twister. En það er allt í lagi. Ég man hvort sem er alveg hvernig Blámi stjörnustrákur er, þetta er í þriðja skipti sem hann er sýndur! Og það er sko ekki langt síðan síðast...
Áðan var ég að glíma og klifra upp kaðal í íþróttahúsi Melaskóla og reyndar líka að teikna glímukalla. Eða meira svona krassa. Það var frekar gaman. Og já, hoppa á trampólíni. Það var wikked.
Mér er spurn...hvernig fara kennarar sem setja fyrir 10-12 blaðsíðna heimildarigerð um sálfræðilegt efni að því að halda geðheilsu þegar kemur að því að lesa þær allar yfir? Þær eru líklega misjafnar að gæðum og um efni sem kennarinn er líklega háskólamenntaður í og veit því allt um. Ég er að hugsa um að lauma nokkrum bröndurum inn á milli línanna í minni ritgerð. Eða setningar hér og þar þar sem stendur t.d.: Jæja er ekki kominn tími á annan kaffibolla? Eða...pissupása!
Jæja, ég ætla að spara ritkvóta minn fyrir afganginn af ritgerðinni minni sem af þessum texta að dæma verður meistaraverk......eða ekki....