Ég er ekki enn í Svíðþjóð. Ég er komin heim. Reyndar löngu komin heim. Svíþjóð var alveg frábær. Ég ætlaði alltaf að setja ferðasögu hingað inn en það einhvernveginn fyrirfórst sökum gífurlegra anna undanfarna daga. Ég læt bara nægja að segja að þetta var stórskemmtileg vika í alla staði og ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel. Að ferðast með bekknum sínum til útlanda býður nú ekki upp á mikið annað.
Ég verð að minnast á nokkra hluti sem ég komst að um Svía í þessari ferð: - hjá Svíum er kvöldmatartíminn um 4 leytið - svíar fara alveg óhemju snemma að sofa (þau voru öll óskaplega hissa á því hvað við vökum lengi og þá sérstaklega um helgar, ein stelpan hafði aldrei vakað lengur en til 5). - svíar eru upp til hópa mjög heilsusamlegt fólk
Mig grunar reyndar að þetta eigi að vera í hina áttina og öfugt, þ.e. Íslendingar borða kvöldmat afar seint, vaka gríðarlega lengi og eru ekkert sérstaklega heilsusamlegt fólk.
Svo koma Svíarnir 16. apríl (á fjögurra ára fermingarafmæli mínu, fjögurra ára!!).
Svo ef við förum út í allt aðra sálma þá er ekki jafn gaman hjá mér þessa dagana, ég stend alveg á haus í hinu og þessu og mér líður hreinlega eins og ég sé ekki lengur til, það er svo mikið að gera að ég hef varla tíma til að hugsa. Það er skrýtin tilfinning. En bráðum mun ég endurfæðast, já gott fólk, sumarið nálgast óðum..... :D Nú er akkúrat rétti tíminn til að fara að hlakka til yndislega sumarsins og sumarfríisins.