Naunaunau...ekkert blogg í meira en tíu daga. Ég veit satt að segja ekki hvað það á að þýða. Jú...kannski af því ég er alltaf í skólanum til sex. Það styttir daginn óneitanlega mjög mikið og maður getur ekki leyft sér hvaða munað sem er, eins og að blogga.
Ég held áfram að lifa eftir nýja planinu mínu, það var gaman í gær. Það var líka fimmtudagur. Fimmtudagar eru öndvegisdagar.
Getiði hvað! Ég á Airwaves armband þökk sé gulldrengnum honum bróður mínum. Það er rautt og fallegt.
Jæja, annasöm helgi framundan, ég bið ykkur bara vel að lifa!