Jæja...
Þá er komið árið 2005.
Árið 2004 þar af leiðandi búið og verð ég að segja að þegar ég lít til baka þá er þetta ár búið að vera frekar undarlegt. Já, ég verð bara að segja það. Margt búið að gerast sem maður hélt að myndi ekki gerast og margt kannski ekki búið að gerast sem maður vonaðist til að myndi gerast, sem ef til vill mun gerast á árinu 2005. Jebb, nýtt ár = ný tækifæri.
Í dag ætla ég ekki að gera neitt en á morgun ætla ég að labba í kringum Kleifarvatn með pápa og fara á fund, skemmtilegan fund :)
Ítalía, ííítalíaaaa......
En allavega, takk allir fyrir árið sem var að líða gott fólk og þá sérstaklega uppáhalds manneskjurnar mínar sjö.