Það er til fólk sem að þekkir ekki andlit. Heilinn þeirra hefur bara ekki hæfileikann til að þekkja andlit. Það þekkir ekki einu sinni sjálft sig. Fyrir þessu fólki eru öll andlit eins, rétt eins og kindur eru fyrir okkur. Skrýtið...
Ég var alveg nýbúin að pæla í þessu um daginn, hvort þetta væri hægt, þegar Egill sagði mér frá manni sem er svona.
Annars var ég að koma úr allsherjar verslunarferð þar sem ekkert var undanskilið. Við tókum Smáralindina, Kringluna, bæinn og Ikea allt í einni ferð. Það er nefnilega vetrarfrí hjá okkur Kvennófólkinu og svona daga verður maður bara að nýta.