Nú á ég tölvu. Hún er pínulítil og ég get tekið hana með mér hvert sem er. T.d. á klósettið. En ég veit nú ekki alveg hvort ég á eftir að nýta mér þann möguleika. Það verður tíminn að leiða í ljós.
Annars er það í fréttum að ég hyggst ganga til náða á næstu mínútum eftir annasaman en árangursríkan dag.
Ég bið ykkur vel að lifa.
Eða nei, bíðið aðeins. Vá...þetta blogg var ekki um neitt. Fyrirgefiði. Ég er samt að hugsa um að pósta því. Það er bara ekki efst á forgangslista hjá mér núna að skrifa langar og/eða innihaldsríkar færslur. Enda eru blogg ekkert endilega til þess. Mér finnst að blogg geti alveg eins verið til þess að hripa niður örfá innihaldslaus orðasambönd bara svona af því mann langar að vera aðeins lengur í nýju tölvunni sinni og hlusta á alla tónlistina sem er í henni.
En já, svo er kisi sem eitt sinn gekk undir nafninu ljóti kisi en gerir það ekki lengur því hann er ekki ljótur lengur svo núna er hann kallaður sínu rétta nafni sem er Vaka týndur. Hann er flökkukisi í eðli sínu og vill alltaf vera að fara einhvert og kanna heiminn. Svona svolítið eins og ég, þess vegna skil ég hann vel. Málið er að hann er bara svo lítill greyið að hann ratar ekki alltaf heim þegar hann vill fá mat og hitta systur sína feita/lata kisa eða Sabor/Huppu. Æi...ég vona að hann sé ekki frosinn einhversstaðar.