Einu sinni þegar ég bjó í íbúðinni á 4. hæð á Kaplaskjólsveginum sat ég úti í gluggakistunni og horfði út um gluggann en þar eyddi ég yfirleitt löngum stundum. Við bjuggum nenfilega beint fyrir ofan verslunarkjarnann þar sem bókabúðin Úlfarsfell er, blómabúð og eitthvað svona dót og svo auðvitað besta ísbúð í heimi en ís var einmitt uppistaða fæðu minnar á þessum árum. Allavega, eins og svo oft áður þá sat ég úti í glugga og var að hugsa...um eitthvað. Allt í einu sé ég hvar svona einhverskonar þaklúga opnast á verslunarhúsnæðinu. Upp úr henni koma u.þ.b. 15 unglingspiltar, eiginlega allir snoðaðir og í svörtum fötum. Þeir klifra niður af þakinu og einn stoppar á rafmagnsskúrnum sem er fastur við blokkina mína og pissar þar. Svo hverfa þeir úr augsýn minni.
...
Þetta var sko um hábjartan dag og fannst mér þetta afskaplega undarlegt. Venjuleg manneskja hefði líklega notað dyrnar í stað þessarar ofurlitlu þaklúgu til að komast inn nema ef til vill að hún væri í einhverjum ólöglegum erindagjörðum. Samt man ég ekki eftir að hafa heyrt um neitt rán í fréttum eða neinsstaðar yfirleitt þennan dag eða daginn eftir. Ég er velti ennþá reglulega fyrir mér hvað var eiginlega í gangi. Svo trúði mér enginn þegar ég var að segja fólki frá þessu. Það getur auðvitað verið að mig hafi verið að dreyma eða ímynda mér þetta og verið undir áhrifum frá einhverskonar ninjumyndum eða eitthvað...en ég held samt ekki.
Mér datt í hug að leita til dyggra lesenda minna um svör við þessari stærstu ráðgátu lífs míns.
Meðan þið eruð að hugsa skulið þið hlusta á þetta lag: