Ég ætla að fara í átak og blogga á hverjum degi hér eftir, sama þó ég hafi ekkert að segja. Þá finn ég bara eitthvað tilgangslaust umræðuefni sem fólk getur komið méð skoðanir sínar á hér í kommentakerfinu. Það er alltaf gaman af tilgangslausum umræðum......
Jæja, svolítið langt síðan ég bloggaði síðast, nánast tvær vikur......tíminn er svo fljótur að líða, ég hef svo mikið að gera en samt hef ég aldrei neitt merkilegt að segja. Ég er mér til mikillar skelfingar orðin ein af þessum bloggurum sem blogga að meðaltali tvisvar í mánuði og aldrei um neitt mekilegt. Það er ekki gott.
Í gær fór ég á leiksýninguna Glæsta tíma, sett upp af Fúríu, leikfélagi Kvennó. Það var bara mjög skemmtilegt og hló ég mikið.
Bráðum koma páskar, eins og ég hef áður minnst á, og þá er ég að hugsa um að skella mér í sveitina. Það er svo langt síðan ég kom þangað. Þegar ég var yngri var ég þar nánast allt sumarið á hverju ári en síðustu tvö árin hef ég verið þar í samtals svona viku. Sem er alls ekki nógu gott. Það er víst komið nýtt fjós með vélmenni sem mjólkar kýrnar og svo skilst mér að kálfarnir hafi vélræna fóstru......