Ég er einmana, með hausverk og ógleðistilfinningu þarf að semja heila íslenskuritgerð sem á að skila á miðvikudaginn. Svo á ég eftir að læra og svo var ég í jarðfræðiprófi sem mér gekk hörmulega á. Svo er einhver umferðartími í tusk tímanum á morgun sem enginn vill skrópa með mér í. Svo ég verð ekki kominn heim úr skólanum fyrr en kl. 15:20 á morgun. Alveg eins og í dag.......ohhhh
Ég ætla ekki að afsaka mig fyrir að skrifa niðurdrepandi blogg......ef þér finnst þetta leiðinlegt skaltu bara hætta að lesa.
Eftir þetta jarðfræðipróf er ég aftur farin að íhuga hvort ég eigi að skipta yfir á félagsfræðibraut. Ég á bara ekki samleið með raungreinum. Mér finnst þær leiðinlegar. Afhverju á ég að rembast við að vera að læra eitthvað sem mér finnst leiðinlegt í fjögur ár bara af því það er gott fyrir framtíðina? Ég er búin að ákveða mig hvað ég vil gera í framtíðinni.....það er ekki séns að ég muni vinna við eitthvað sem tengist raungreinum.
Reyndar get ég tekið fullt af félagsfræðibrautaráföngum sem val eða eitthvað svoleiðis. Þannig að það er spurning..........
Jæja, það er kominn matur......hakk og spaggedí eins og venjulega.....ohhhh
Sjáið bara hvað ég er búin að gera! Ég er búin að skipta um templeit. Nokkuð sem ég hélt að ég myndi aldrei gera. En það er líklega vegna þess að ég er að fara í jarðfræðipróf á morgun og nenni ekki að læra.