Samt sem áður ágætis helgi á heildina litið. Ég ákvað að taka mér veikindafrí frá vinnunni í dag. Ég var eitthvað að efast um réttmæti þessa veikindafrís míns eins og alltaf þegar ég er veik en mér snerist hugur þegar ég lallaði út í kirkjugarð áðan að heimsækja Signýju og Steinvöru og þaðan út í sjoppu. Ég nefnilega nánast skreið inn um dyrnar að húsinu mínu því ég gat ekki staðið í lappirnar sökum svima. Þið getið því rett ímyndað ykkur hvernig ástandið á mér hefði verið í arfafullu beðunum í Grasagarðinum í dag eftir rigningar helgarinnar.
Nú er bara að vona að ég verði orðin sæmilega frísk áður en ég fer að vinna í Melabúðinni á eftir:/
Í aðstæðum sem þessum þýðir ekkert annað en að fá sér nammi og horfa kannski smá á sjónvarpið.