í fyrrinótt að sjón vinstra auga míns versnaði til muna. Það er ekki gott að hafa mismunandi sjón á hvoru auga. Það verður allt einhvernveginn skakkt. Og nú er ég með hausverk.
Mig langaði bara að deila þessu með ykkur.
Og nú er hið langþráða vetrarfrí búið og ég mætti til leiks í morgun, að ég hélt, úthvíld og endurnærð. En það reyndist misskilningur. Nú er klukkan tíu og ég sé ekki annan kost vænni en að fara að sofa. Ég bara get ekki haldið augunum opnum.
Vetrarfríið var samt mjög skemmtilegt, á andlega sviðinu er ég endurnærð.