Tvímælalaust meðal bestu daga ársins.....jú, dagurinn sem vorprófunum lýkur og sumarfríið gamla góða tekur við. Sá dagur er einmitt í dag. Og hann er ekki búinn! Sjibbýýýý!
Eftir sæmilegt þýskupróf í morgun gekk ég sallaróleg (jafnvel of róleg?) út í sólina og frelsið. Aaaahhhh.....svo fór ég á lokaSvíþjóðarfundinn ásamt bekknum mínum og fékk köku, snakk og trópí tríó. Svo spókaði ég mig í smá stund um ganga Kvennó og á bókasafni Kvennó í síðasta skiptið (sem nemandi allavega, ekki skilja mig sem svo að ég ætli að verða kennari þarna en kannski kíki ég í heimsókn). Því næst lá leiðin út í bílinn hennar Signýjar ásamt Steinvöru og við nutum þess til hins ýtrasta að hafa ekkert planað og engum skyldum að gegna og tókum þá skyndiákvörðun eftir smá rúnt að keyra upp í perlu og fá okkur kúluís. Hann var góður og það var gaman:) Svo nutum við þess smá meira og keyrðum um Öskjuhlíðina en svo upp að Hallgrímskirkju þar sem við hittum Helgu og ég rölti ásamt henni niður í bæ að leita mér að flíkum. Það gekk ekki sem skyldi en það var samt sem áður gaman því það er komið sumarfrí. Ég hef allan tímann í heiminum til að leita mér að flíkum:) Eftir bæjarferðina, Devitos og svolítið langan bíltúr um Reykjavíkurborg með nokkra útilegumenn brugðum við okkur í langþráð sund, spókuðum okkur í sólinni og hlustuðum á misskemmtilegar heitapottsumræður. Þegar heim kom beið mín lambalærissneið með öllu tilheyrandi.
Kvöldið er óráðið. Kannski að ég verði bara heima í sæluvímu minni og fái mér ef til vill nammi og horfi smá á sjónvarpið.
Jæja, ég vona að þið hafið haft jafn gaman af að lesa þess útlistingu mína á þessum frábæra degi og ég hafði af að skrifa hana. Ég efast samt um það en það er allt í lagi því það er komið sumarfrí.
Næstu dagar bjóða upp á jafn mikið glens og gaman, ef ekki meira: júróvisjónhittingur, lokaball, grillafmælisveisla, fataversl og aftur júróvisjón(sem er samt ekkert gaman nema Ísland komist upp úr undankeppninni) og svo Grasagarðurinn gamli góði.
Ég votta virðingu mína þeim sem eru ennþá í prófum og sendi þeim baráttukveðjur. Þið eigið sko gott í vændum ef mér skjátlast eigi!
Lag dagsins: Sunshine, lollipops and rainbows - Lesley Gore
Mér finnst fólk eitthvað slappt við að kommenta þessa dagana.
Ég man þá gömlu góðu þegar þið voruð uppá ykkar besta og bloggið mitt fékk meira en hundrað komment á eina færslu. Nú jæja, þið hafið kannski merkilegri hluti að gera í dag. Það er kannski bara jákvætt...