Mín áskæra systir, Gunnhildur, á afmæli í dag á þeim merka degi 6. desember sem oftast er tileinkaður heilögum Nikulási en hann er hvorki meira né minna en fyrirrennari jólasveinsins. Heill sé yður Nikulás og Gunnhildur.
Hér er blogg sem ég skrifaði fyrir löngu en blogger neitaði að birta, veit ekki af hverju:
Gærdagurinn minn var mjög skrautlegur og skemmtilegur. Ég tók aldrei þessu vant heilan helling af myndum en myndavélin er því miður ekki í fórum mínum núna þar sem Magnea tók hana til varðveislu. Það var afskaplega sniðugt múv þar sem ég týndi öllu öðru sem ég var með á mér fyrir utan símann minn. Svo það koma myndir inn eftir helgi en þessi mynd hér að ofan var tekin af einhverjum stúlkum sem sjá um þessa síðu.
Ég var semsagt að dimmitera ásamt skólafélögum mínum. Við erum samt ekki að fara að útskrifast, við vorum bara að æfa okkur. Við klæddum okkur (næstum) öll í ljóta samfestinga, fengum okkur öl og spiluðum twister uppí skóla til að byrja með, síðan lá leiðin á American Style til að snæða og því næst var stoppað á Austurvelli þar sem við tókum einn eða tvo Twistera sem vakti óskipta athygli vegfarenda. Það voru reyndar fullt af einhverjum fullum köllum sem voru með dónaskap. Ekki rónar samt.
Að þessu loknu héldum við í partý í Þingholtunum hjá henni Höllu Stínu þar sem öldrykkju var haldið áfram af fullum krafti, fyrsta flokks tónlist blastað úr græjunum á meðan nokkur dansspor voru stigin og alvarleg málefni rædd.
Svo voru nokkrir sem skiptu um föt og leið þeirra lá í bæinn þar sem hann var málaður rauður fram undir morgun.
Dagurinn í dag er svo búinn að vera sá aðgerðarlausasti í langan tíma. Ég er samt ekki með jafn stórt samviskubit og ég myndi vera með ef ég hefði ekki klárað fyrrnefnda ritgerð í gær:) Það eina sem ég er búin að afreka í dag er að fara út í melabúð og skrá mig á nokkrar vaktir. En það stendur til bóta, ég og Egill ætlum að vera úti í skúr í allt kvöld.