Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mínum úr Stóru skordýrabók Fjölva á smjörbubbi náskyldan frænda sem ber heitið kartöflububbi.
Þetta var fróðleiksmoli dagsins. Nú ætla ég hins vegar að halda áfram að ryðja úr þeirri hrúgu af krumpuðum fötum, brotnum geisladiskahulstrum, tómum bjórdósum, blýöntum, fjöðrum, blaðarusli, litum og öðrum óskilgreindum hlutum sem herbergið mitt hefur hýst síðustu vikurnar. Kannski að ég finni eitthvað vísindalega áhugavert sem hefur verið að ummyndast neðst í þessari hrúgu síðan einhverntímann snemma í vor. Ég læt ykkur vita. Ég vona samt að ég finni ekkert lifandi þarna...
Ég var nefnilega að reyna að klára verkefni. Það gekk ekki. Svo ég klára það á morgun því það kemur alltaf nýr dagur eftir þennan dag. Nema þegar kemur heimsendir og þá breytir nú voða litlu hvort að ég kláraði skriflega verkefnið mitt í módelteikningu áður en það gerðist eða ekki.
Ég verð að viðurkenna að ég er komin með nýjan hlut til að gera í tölvunni annan en að blogga og þessvegna hefur verið frekar lítið um það undanfarið. Umræddur hlutur er einn sá bjánalegasti sem ég veit um og kallast mæspeis og tekur mikið af dýrmætum tíma manns. Hann er samt frekar sniðugur. Ég er alveg búin að endurnýja kynnin við þó nokkra gamla vini í gegnum þetta dótarí. Sem er gaman. Samt pínu tilgangslaust. En gaman...
Já, annars er það í fréttum að ég stefni út fyrir landsteinana næstkomandi júní, langt, langt út fyrir þá. Það var reyndar á dagskránni allan tímann nema að nú er ég komin með ferðafélaga og plan í grófum dráttum.
Ég ætla að yfirgefa samkomuna áður en ég sofna ofan á lyklaborðinu.