Þá er margt alveg ótrúlega fyndið í þessari annars afskaplega langdregnu líffræðibók sem stendur til að prófa úr á mánudaginn. T.d. myndin af stökkbreyttu stuttfættu kindinni (hahahaha, það fyndnasta sem ég hef séð) og fiskunum sem festa sig með munninum utan á aðra fiska, jafnvel margir á einn, og hanga bara þar til að flytjast milli staða. Svo eru armslöngur skondnustu dýr sem ég veit um.
Já, það þarf lítið til að kæta mig. Allavega meðan á prófunum stendur.
Svo er hér smá auglýsing:
Fréttatilkynning vegna tónleika Náttúruvaktarinnar á Grandrokk sunnudaginn12. des.
Illvirkjun blæs til tónleika á Grandrokk á sunnudagskvöldið 12. desember klukkan 21. Hér er um að ræða fyrstu tónleikana í tónleikaröð Náttúruvaktarinnar "Kveðjum Sinnuleysið". Fram koma Trúbadorinn Þórir og Súkkat. Þórir hefur getið sér gott orð fyrir frábæra plötu sína I believe in this og Súkkat eru löngu orðnir landsþekktir fyrir skemmtilegar lagasmíðar og texta. Aðgangseyrir er einungis 500 krónur.
Liðsmenn Náttúruvaktarinnar segja kominn tíma til að vakna frá dvalasinnuleysi og fara að hugsa meðvitað og gagnrýnið um þá leið sem Ísland stefnir í umhverfis- og efnahagsmálum. Kominn sé tími til að átta sig á þeim takmörkuðu auðlindum sem verið er að henda út í hafsauga.
"Árin 1783 - 1785 var hallæri á Íslandi í kjölfar Skaftárelda (móðuharðindin) Móðan var gosgufur ú Lakagígum sem ollu uppskerubresti og dró úr sólarljósi svo að meðalhiti um alla jörð lækkaði. Um 10 þúsund manns (20% þjóðarinnar) létust af bjargarskorti og sóttum. Um sumarið 1784 kom almesti landskjálfti sem komið hefur síðan land byggðist og jók við hörmungarnar. Árið 1786 geisaði bólusótt sem drap 1500 manns."
Það er ekkert annað......aumingja forfeður okkar. Af hverju gerast ekki svona svakalegar jarðfræðilegar hörmungar á Íslandi lengur? Þær kannski á það eftir að gerast í framtíðinni. En það er svo sem ekki eins og það séu ekki nóg af hörmungum yfirvofandi hvort sem er........gróðurhúsaáhrif og jöklabráðnanir og mengun og ósongöt og Kárahnjúkavirkjun.
Sem minnir mig á það. Er fleirum hér inni sem finnst "Íslenska ákvæðið" ótrúlega hallærislegt og rangt? Þetta þarna með að af því að við erum búin að vera svo umhverfisvæn í gegnum tíðina þá megum við menga meira núna.......haaaaaaa?
En já ég er farin að sofa, það veitir ekki af. Æ nei, ég þarf að klára að læra......:[
Jæja þá er jólafríið endanlega fullbókað. Mér á allavega ekki eftir að leiðast í því. Sem er kannski eins gott....
Ritnefndarstörf, jólaball, stúdentsveisla hér heima (hann Egill minn), tvö afmæli (annað þeirra hinum megin á landinu), vinnan í Mýró og margt, margt fleira plús auðvitað hið árlega, nauðsynlega jólastúss sem ég hef yfirleitt átt fullt í fangi með síðustu ár, án þess að til komi svona viðbótarstúss.
Það verður samt gaman að komast aðeins í sveitina fyrir jólin, þá get ég loksins prófað að fara í jólahúsið í Eyjafirðinum á réttum árstíma en það hefur verið langþráður draumur síðan ég steig fæti mínum þar inn í fyrsta skipti.
Og nú eru aðeins tvö próf eftir \o/
P.s. Ég sakna skemmtilegra umræðna í kommentakerfinu mínu, þetta á jú að heita háannatími í bloggheiminum nú þegar prófin standa sem hæst....