Heyriði, ég gleymdi að tilnefna manneskju dagsins í gær. Það er hún Hrafnhildur litla Sif sem sigraðist á hundafælni sinni og kom færandi hendi í gær með jólapakka handa Týra. Í honum var bleikur kleinuhringur úr gúmmíi. Týri var að vonum hæstánægður og lék sér að þessu allt kvöldið, eða þar til það koma gat á hann.
Ég biðst afsökunar á að hafa ekki kastað kveðju á ykkur fyrr en ég má eiga það að ég gerði svona u.þ.b. 20 heiðarlegar tilraunir til þess á tölvunni hans Egils. Það var engan veginn að ganga upp. Ég ætlaði nefnilega að gera myndablogg. Núna er ég í tölvunni hans Bjarka en það eru engar myndir þar inná svo myndabloggið verður að bíða betri tíma. Það eru hins vegar komnar nokkrar nýjar myndir inná myndasíðuna mína.
Ég vona að aðfangadagskvöldið ykkar allra hafi verið ánægjulegt og að allir séu ánægðir með flatskjáina sína...
Mitt var allavega æðisgengið. Núna er jóladagur sem í minni fjölskyldu er betur þekktur sem hin árlegi tjilldagur því við kjósum að fagna fæðingu Krists í ró og aðgerðarleysi. Hann fer þannig fram að allir vakna seint og um síðir, fá sér kakó og ristað brauð og ef til vill nokkra konfektmola og fara síðan að gera það sem þá langar til. Það gæti t.d. falið í sér að glápa á jóladagskrá sjónvarpsins eða dvd sem var í einhverjum jólapakkanna, endurvekja kynni sín við Mario í gameboy, spila eitt af þeim ótalmörgu spilum sem var í jólapökkunum við systkini sín, hlusta á góða tónlist (Ampop, Baggalút eða Antony and the Johnsons t.d.) nú eða föndra, mála myndir eða lesa bók. Ekki er nauðsynlegt að klæða sig fyrr en ef til vill svona um 6-7 leytið þegar veislumatur er snæddur sem í þetta skiptið er held ég hryggur.
Jæja, Bjarki vanþakkláti er að reka mig úr tölvunni. Ég sem gaf honum geðveikt flotta jólagjöf (Ampop diskinn) og hann mér ekki neitt. Nema ást og kærleika að eigin sögn. Eins og ég eigi ekki nóg af því...