hefur komið sér mjög vel fyrir mig þótt undarlegt megi virðast, þar sem ég er nú ekki í grunnskóla lengur. Auðvitað vildi ég frekar að börn landsins fengju kennslu, en í svona aðstæðum er nauðsynlegt að líta á björtu hliðarnar.
Það vill nefnilega svo til að móðir mín er grunnskólakennari svo að nú er ég að fá smjörþefinn af því hvernig það er að eiga heimavinnandi mömmu. T.d. á ég núna nýprjónaða, afar fallega ullarvettlinga og svo er húfa í svipuðum stíl á leiðinni. Svo hef ég fengið skutl í vinnuna síðustu fimm skiptin eða svo, þannig að ég þarf ekki að hlaupa úr skólanum og út á Nes. Svo er búið að breyta stofunni okkar voða fínt og fötin mín eru hrein í miklum mæli (fyrir utan þau sem ekki hafa ratað í óhreinatauið). Að ég tali nú ekki um allar reddingarnar sem mamma hefur séð um fyrir mig síðustu þrjár vikur. Ég skil hreinlega ekki hvernig ég fór að áður en verkfallið byrjaði.
En svo er hin hliðin. Nú hanga krakkarnir heima allan daginn og verða að finna sér eitthvað til dundurs. Sum börn eru voða þæg og lita í litabækurnar sínar á meðan sum börn koma sér fyrir á bak við vegg rétt fyrir utan Kvennaskólann og henda rusli og mold í grandalausa Kvenskælingana sér til gamans. Ég skil ekki svona krakka. Aldrei hefði mér dottið þetta í hug þegar ég var yngri. Ekki það að ég hafi verið einhverskonar englabarn en fyrir mér voru unglingar í sama flokki og djöfullinn sjálfur og aldrei dirfðist ég að yrða á þá á nokkurn hátt. En kannski var ég bara skræfa.
Vikan bara alveg að verða búin. Sem er ágætt. Þessi vika er búin að vera annasamasta vika í manna minnum held ég bara. En samt mjög skemmtileg vika. Það sem ber hæst er held ég leiksýningin sem við fórum á í gær með Kvenno. Við sáum Edith Piaf og ég varð alls ekki fyrir vonbriðgðum. Mér leiddist ekkert alla sýninguna sem er ekki alveg venjan hjá mér. Svo er aðalleikkonan svo rosalega skemmtileg og indæl. Og góð söngkona.
Svo áðan var ég á rúntinum með Helgu sem var að fá bílpróf. Til hamingju Helga mín :)
Í gær byrjuðum ég og Steinvör á litafræðinámskeiðinu okkar. Mér líst bara mætavel á það.
Ég held að ég hafi ætlað að skrifa eitthvað meira en æeg er búin að gleyma því og svo er pabbi líka eitthvað að reka á eftir mér.
Færni mín í að slá inn á lyklaborð hefur stóraukist. Var bara að taka eftir þessu núna.