Í gær gerði ég margt. Þetta tvennt stendur upp úr:
keypti flugmiða hjá til Danmerkur 24. júní næstkomandi og flug heim 10. júlí, tveimur vikum síðar. Þá er bara eftir að kaupa miða á Hróarskeldu.
fór á Ampop tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum með Agli.
Ég sé sko ekki eftir að hafa farið á þessa tónleika, enda er alltaf gaman að góðum tónleikum. Ég veit, ég hef skrifað þetta oft. Þetta er örugglega ekki síðasta skiptið samt. Ampop er líka kúl hljómsveit með hressan trommuleikara sem lítur smá út eins og Jesús. Ég ætla ekki að vera með einhverja háfleyga umfjöllun um þessa tónleikana þar sem ég hef ekki tilskilinn orðaforða, ég læt nægja að segja að mér fannst gaman. Ef þið viljið hástemmda tónlistartengda umfjöllun þá vísa ég ykkur hingað, en þar hefur hann Egill bró náð sér á allmikið flug við að kynna tíu uppáhalds plöturnar sínar. Mjög áhugavert. Svo getið þið alltaf kíkt á Rjóminn.is en sú síða hefur verið helsti félagi minn á bókasafninu í undanfarin göt í stundatöflu. Hm, nýjasti dómurinn er einmitt um Ampop diskinn. Gaman að því.
Mánudagar eru ekki minn tebolli. Þá er ég í skólanum til sex. En það er kannski bara jákvætt því þegar ég kem heim er dagurinn eiginlega búinn og þriðjudagur eiginlega kominn, sem er mun skárri en mánudagur.
Ég veit ekki hvað ég á af mér að gera núna, fyrir utan að læra sálfræði sem ég nenni ekki alveg strax. Þess vegna ætla ég að segja ykkur frá helginni.
Hún var alveg stórskemmtileg! Ég eyddi meirihlutanum innan veggja Melabúðarinnar sem var superb (sagt með asnalegum hreim). Skemmtilegast var þó á laugardagskvöldið en þá fór ég út á sleða ásamt góðu fólki í Plútóbrekku sem er náttúrulega bara langbesta sleðabrekka höfuðborgarsvæðisins og þó víðar væri leitað. Ég þaut niður brekkurnar og yfir stökkpallana á hraða ljóssins í skítakulda og roki með bjánalega húfu og vorkenndi öllum þeim sem halda að það að renna sér niður brekku á sleða (nú, eða disk, rassaþotu eða hverju sem er) sé eitthvað sem maður eingöngu gerir sem barn en vex síðan upp úr. Það er nefnilega stór misskilningur. Svo er alltaf hægt að grafa sig í fönn ef það verður of kalt.