Ég er í skólanum aftur. Á bókasafninu. Í tölvunni. Óg ég hef ekkert að gera til kl. 12:45. Núna er klukkan 12:00.
Bókasafnið mun verða mitt annað heimili þessa önn þar sem ég er í samtals 5 götum á viku í miðjum degi. Það gerir samtals akkúrat 10 klukkutíma á viku. Einnig mun ég verða afar tíður gestur í World Class þar sem ég skráði mig í þrjá íþróttaáfanga. Ég verð að öllum líkindum í góðu formi í vor. Það er þó jákvætt. Svo verð ég vel að mér í því hvað er í spilun á helstu útvarpsstöðvunum. Einnig jákvætt. Svo mun ég líklega ekki þurfa að læra mikið heima hjá mér heldur bara á þessu margumrædda bókasafni. Sem er reyndar frekar kósý. Það líkist ekkert bókasafninu í Kvennó. Enn og aftur jákvætt. Svo er minna en ár þangað til að ég útskrifast. Sem er best.
Fyrir áhugasama þá byrjaði ég aftur að vinna í Melabúðinni í gær. Það var gaman. Ég afgreiddi ýmis konar kjöt og fisk, pakkaði vínberjum, þurrkaði úr kjötborðinu (sem er meira en að segja það þar sem það er bilað og bleika spreyið fraus alltaf á nokkrum sekúndum), þreif upp skyrslettur og fleira tilheyrandi.
Ég geri mér fulla grein fyrir að þetta er mjög óáhugavert blogg, ég bara hef ekkert annað að gera. Sorrý. Ég get ekki einu sinni gert það áhugaverðara með mynd eða mismunandi stafaútfærslum því það virðist vanta nauðsynlegan hugbúnað til þess í þessa tölvu.
Engu að síður ætla ég að tilnenfa manneskju dagsins í gær því það er svo gaman. Að þessu sinni hlýtur bróðir minn, Egill Viðarsson, þann titil. Hann lagaði til í öllum bílskúrnum. Og kveikti í reykelsi eins og honum einum er lagið.
Jæja, ég ætla að fara niður að fá mér hrökkbrauð. Megi þið öll vel lifa. Sé ykkur vonandi einhverntímann í vetur þó ég sé næstum úti í sveit.
Æææææ.....frábæra myndabloggið bara vill ekki birtast :( Það er örugglega bara of stór biti fyrir greyið blogger að kyngja. En ég mun redda þessu. Engar áhyggjur. Svo get ég náttúrulega bara hent myndum inná myndasíðuna mína smám saman.
Í dag er mikill sorgardagur. Ég bara get ekki skrifað meira.
Hún Lena litla partýljón hefur snúið frá villu síns vegar og er komin með splunkunýtt og ferskt blogg sem ber heitið http://www.speninn.blogspot.com. Megi það lengi lifa. Velkomin. Velkomin.
Ég bjó til úber kúl myndablogg um daginn en það vildi ekki birtast, þetta blogger dót er alltaf með einhvern derring....og skæting. Eeeeen....ég seivaði það því ég er snjöll og læri af mistökum mínum (þó ekki hvað viðkemur hefturum) og myndabloggið mun birtast innan tíðar ásamt uppgjöri fyrir árið 2005 og ef til vill frásögn af gamlársdeginum þetta árið, hver veit?