Jæja...nú er Guðný Helga farin en Signý er að koma svo ég get sætt mig við það. Svo er ég líka að fara sjálf eftir rétt rúma viku og verð í burtu í meira en mánuð og það skemmtilega við það er að ég veit ekkert hvað ég verð að gera meirihlutann af tímanum. Það er gaman :-)
Mér finnst mikið á okkur Íslendinga lagt að búa við þetta veður. Ég held að fólk sé alveg að fara yfir um.
Á ég að segja ykkur eitt svolítið kómískt? Ég hef stundað nám við 10 skóla. Þá er ég bara að tala um grunnskóla og framhaldsskóla, ekki svona tómstundaskóla....
Á ég að telja þá upp? Ok!
Dalhousie School (Kanada) - Kindergarten og 1. bekkur Östregadeskole (Danmörk) - 2. bekkur Fossvogsskóli - hálfur 2. bekkur og hálfur 3. bekkur eða eitthvað svoleiðis Melaskóli - hálfur 3. bekkur og hálfur 4. bekkur Grandaskóli - hálfur 4. bekkur, 5. 6. og 7. bekkur Hagaskóli - 8. 9. og 10 bekkur Kvennaskólinn - 1. og 2. bekkur Borgarholtsskóli - 3. bekkur FÁ - nokkrir áfangar í fjarnámi Versló - nokkrir áfangar í fjarnámi
Já....ég hef alltaf verið hálf eirðarlaus manneskja. En ég get sagt ykkur að bókasafnskonan í Versló er miklu skemmtilegri en bæði í Kvennó og Borgó. Gaman að því.
Hér eru nokkur skemmtileg lög ef þið hafið áhuga:
Belle and Sebastian - Lazy Line Painter Jane Devendra Banhart - Santa Maria De Feira og This is the Way Depeche Mode - Enjoy the Silence Beirut - Postcards From Italy Blonde Redhead - Elephant Woman Doves - There Goes the Fear
Signý kemur heim rétt bráðum, jeijjeijjeijj! Finnst samt svolítið óþægilegt að það séu strax liðnar tvær vikur. Á sumrin afneita ég þeirri staðreynd að tíminn líði.
Í dag er ég m.a. búin að vera að lesa um skeggvöxt rómverskra karlmanna til forna.
Hey.... Tékkland - Bandaríkin eftir smá. Fyrsti leikurinn sem ég hef áhuga á. Milan Baros er minn maður. Ég treysti honum fullkomlega til að jarða Bandaríkjamenn. Hann er líka töffari. Eins og ég.