Ég ætla að segja ykkur litla sögu úr strætó. Ég var semsagt í strætó á leiðinni í skólann eins og ég er svo oft á morgnana þar sem ég er í skóla á hjara borgarinnar. Ég var, eins og ó svo oft, ennþá svefndrukkin eftir nóttina. Ég var að stara þangað sem ég hélt að væri út í loftið, þ.e. ekki á neitt sérstakt, betur þekkt undir nafninu að vera með störu, þegar ég heyri allt í einu einhverja konu segja: "ertu með störu eða hvað?" Það tekur mig svolitla stund að fókusera á konuna sem þetta mælti en á því augnabliki grettir hún sig og ullar á mig. Hahahahahahaha....ég átti mjööööög erfitt með að halda í mér hlátrinum. Þetta er reyndar fastagestur í sexuna, yfirleitt á sama tíma og ég. Hún ferðast yfirleitt með vinkonu sinni og báðar eru þær frekar skondnar í útliti, alltaf með flíshúfu sem hárið festist alltaf við því það er svo rafmagnað. Svo minnir önnur þeirra mig mjög mikið á gæs... Þær fara alltaf út í Ártúninu.
Já, ég hef kannski verið að stara fullmikið á þær í vetur og þarna hefur hún bara fengið sig fullsadda. Það er samt ekki viljandi, það er bara svo erfitt að horfa ekki á fólk þegar það situr allt í kringum mann.
Ég vona að helgin ykkar allra verði skemmtileg...mín verður það allavega. Sérstaklega í kvöld :D
Mér finnst þið ENGAN VEGINN nógu dugleg við að kommenta...
Ég gerðist menningarleg í gær og fór á listasafn ASÍ að skoða sýninguna hennar Olgu Bergmann. Það var reyndar fyrir skólann og nú er ég að skrifa gagnrýni sem er skemmtilegra en ég bjóst við. Á eftir er ég svo að fara í bíó að sjá Brokeback Mountain (ég er eftir á, ég veit), líka fyrir skólann. Ég er reyndar ekki alveg að tíma því þar sem hún verður örugglega sýnd ofan í kjallara því það er svo langt síðan það var byrjað að sýna hana...en ég þarf víst að skrifa ritgerð um hana í félagsfræði út frá pælingum um samkynhneigð eða eitthvað.
Núna er að koma svona tímabil eins og var hjá mér í lok nóvember þar sem ég er ALVEG AÐ DRUKKNA í verkefnum og skyndiprófum. Ég ætlaði reyndar að læra af reynslunni forðast það sökum þess hversu nálægt því ég var að tapa geðheilsu minni endanlega þarna síðustu vikuna í nóvember en svo bara hafa aðstæður ekki leyft mér að læra neitt voða mikið þessa önnina. Svo vinnur maður líka best undir pressu fyrir svo utan það að hlutirnir reddast alltaf á endanum. Þið kannist við það, haaaaa?
Það verður samt gaman um helgina! :D
Lag dagsins: I Bet That You Look Good on the Dancefloor - Arctic Monkeys (ég er öll í því að kynna mér böndin sem verða á Hróarskeldu þessa dagana)