Þar sem ég kann ekki að gera linka svona til hliðar þá geri ég það bara svona:
http://nailthesnail.blogspot.com/ (egill)
http://diskur.blogspot.com (sigríður)
http://heyrustum.blogspot.com (arngunnur)
http://jollygreat.blogspot.com (lena)
http://melhagi.address.is/ (guðrún rós)
http://angist.blogspot.com/ (halla)
http://breidholtsskoli.ismennt.is/fjolmenning/ (vefur sem móðir mín bjó til)
Ég dey ekki ráðalaus, neineineineineinei...............
Þar sem ég sagðist ætla að blogga á hvejum degi ef að ég ætti blogg og þar sem ég á nú blogg og er ekkert búin að blogga í dag þá ætla ég að rita hér nokkrar línur, jafnvel þó að ég hafi ekkert áhugavert að segja.
Í dag fór ég með mömmu inni og systur í Ikea til að skoða allskonar drasl fyrir nýja herbergið mitt. Það er reyndar allt í rústi og ekki beinlínis hægt að kalla það herbergi ennþá. Undanfarna daga hef ég verið að dunda mér við að brjóta niður veggi og rífa niður klæðningu og flísar. Það getur verið mjög skemmtilegt, sérstaklega ef maður er í vondu skapi. Einnig fæ ég góða þjálfun í því hvernig er best að nota kúbein og það hlýtur að koma að góðum notum einhverntímann.
Í gær fóru stelpurnar til Ágústu í eitthvað stelpuboð. Ég ákvað að vera heima til að jafna mig eftir veikindin og dundaði mér við að læra og horfa á sjónvarpið.
Man einhver eftir Trigger Happy TV þáttunum sem voru í sjónvarpinu hér forðum? Bróðir minn leigði spólu með þeim í gær vá hvað þetta er fyndið. Bræður mínir voru alveg að tapa sér úr hlátri, sérstaklega Bjarki. Þetta eru bara ógeðslega fyndnir þættir. Ég mæli eindregið með þeim. Þetta er svona hidden kamera dæmi.
Í gær var ég á Fréttablaðinu í þrjár klst. að gera skoðanakönnun. Ég get ekki sagt að það hefi verið gaman. Ég vona að þið sem þetta lesið séuð kurteis við fólk sem hringir og er að gera skoðanakannanir. Það er aldrei að vita,einhvern tímann gætuð þið lent í því að vera sú manneskja sem hringir. Þá munuð þið hugsa: "ohhh, ég vildi að ég hefði alltaf verið kurteis við skoðanakönnunarfólkið."
Gunnhildur litla systir mín er veik eis og flestir á landinu um þessar mundir. Hún er með barkabólgu og mjög háan hita. Ég vorkenni henni hræðilega. Ég fékk einu sinni barkabólgu. Það var við upphaf áttundu bekkjar og ég gat ekki talað í mánuð. Einhverjir muna eflaust eftir því.
Já.......endilega skrifið í gestabókina svo það líti út eins og ég eigi vini.
Ég er alveg ótrúlega dugleg. Mér tókst að setja inn teljara og gestabók alveg sjálf. Endilega skrifið eitthvað fallegt í gestabókina mína:]
Frænka mín Hrafnhildur Sif sem er 1og1/2 árs er í heimsókn. Hún ætlar að skrifa nokkur orð:
,mmmmmmmmmmmmmmm mcygfdþ
bb vfdhng fdfbhfghv d s d
Vill einhver góðviljaður segja mér hvernig á að gera linka?
Bjarki, litli bróðir minn á líka afmæli í dag, þann 04.04. Hann er kominn á tvítugsaldurinn. Gaman að því. Ég óska honum hér með hjartanlega til hamingju með daginn.
Jeij...............ég er búin að eignast blogg! En gaman! En æðislegt. Ég vissi ekki að það væri svona gaman að eiga blogg. Það er allt henni Siggu að þakka að nú getið þið lesið allt um líf mitt sem er að sjálfsögðu mjög spennandi. Svo væri auðvitað ekki úr vegi að koma með smá pólitískan áróður nú þegar kosningar eru svo nærri..............................neeeeii kannski ekki. Eða jú kannski en bara stundum.....:] En takk Sigga fyrir þetta æðislega blogg. Mér hafði náttúrulega ekki dottið í hug að fá einhvern annan til að gera blogg fyrir mig eftir margar árangurslausar tilraunir til þess sjálf:/ Þú ert klók Sigga.
Nú þarf ég að fara að gera afmæliskort handa Steinvöru því ég er að fara í afmæli til hennar og Signýjar á eftir þó að ég sé pínu veik og hafi ekki komist í skólann í dag og þar af leiðandi misst af kökuáti með stelpunum í hádegishléinu í tilefni af afmæli Steinvarar og Signýjar. Vá löng setning. Sökum veikinda minna missti ég einnig af dragkeppni í skólanum og, það sem verra er, tónleikum í hinu húsinu þar sem Noise og fleiri hljómsveitir voru að spila. Árinn sjálfur >:[